Rautt Thai Karrí- hægeldað

Rautt Thai Karrí- hægeldað

Þessi réttur er látinn sjóða í slow cooker við lágan hita. Fullkomið að undirbúa að morgni og koma heim í tilbúinn kvöldmat.

3-4 kjúllabringur

3 msk rautt karrímauk

1 stilkur sítrónugras

4 skarlottulaukar

1 rauð paprika

120 g bambus

50 g minimaís

50 g snjóbaunir

600 ml kókosmjólk

½ msk sykur

1 msk soja sósa

1 lime, safinn

½ tsk salt

½ tsk pipar

2 msk maizena mjöl

Skerið lauk og papriku smátt. Sneiðið minimaísinn í sneiðar og skerið snjóbaunirnar í þrennt.

Byrjið á að setja laukinn í botninn á slow cooker og leggið kjúklingabringurnar yfir.

Merjið sítrónugras stilkinn með hnífsblaðinu og leggið í pottinn ásamt karrímaukinu, papriku, bambus, baunum og maís..

Stráið maizenamjölinu yfir grænmetið og hellið kókosmjólkinni yfir allt saman ásamt sykri, soja sóu og lime safa. Kryddið til með salti og pipar.

Stillið slowcooker pottinn á 7 klst low eða 4 klst á high.

í lokin má veiða bringurnar upp úr pottinum og skera í bita. Setjið kjúklinginn út í pottinn aftur.

Berið fram með soðnum hrísgrjónum.