Spergilkálspestó

Spergilkálspestó

Þetta er það allra grænasta pestó sem ég hef nokkurn tímann gert. Það er afskaplega hollt og virkilega gott bæði með góðu hrökkbrauði eða á grófu brauði. ég er afskaplega hrifin af því að nota þetta pestó sem ídýfu með kexi.

1/2 haus spergilkál

20 g ferskt basil

20 g fersk steinselja

40 g grænkál

2 stór hvítlaukslauf

1 sítróna, safinn

3-4 msk ólífuolía

2 tsk maldon salt

örlítill svartur pipar

30 g af valhnetukjörnum

Setjið allt nema valhnetukjarnana í matvinnsluvél og maukið þi 1-2 mínútur.

Setjið að lokum valhneturkjarnara út í blönduna og maukið í 30 sekúndur til að grófhakka hneturnar.

Geymið í kæli.