Sæt kartöflu og linsu súpa

Sæt kartöflu og linsu súpa

300 g sæt kartafla, flysjuð og skorin í bita

3 meðalstórar gulrætur, skornar í bita

1 lítill laukur skorinn gróft

75 g þurrkaðar rauðar linsubaunir

1 tsk engifer

1 tsk milt karrí

1/4 tsk cumin

klípa chili flögur

1/2 tsk smoked paprika

1/2 tsk maldon salt

3 teningar grænmetiskraftur

2 hvítlauksrif, fínt skorin

1,5 líter vatn

Byrjið á að setja linsubaunirnar í sigti og skolið þær undir köldu vatni áður en þær eru settar í pott ásamt öllum öðrum innihaldsefnum súpunnar í pott og leyfið suðunni að koma upp.

Lækkið hitann og leyfið að sjóða við vægan hita í 30 mínútur.

Maukið súpuna með töfrasprota til að fá silkimjúka áferð.